Stelpan á Rikki Chan
Í gær þá ætlaði ég að færa einni af stelpunum á Rikki Chan rós, en hún var ekki að vinna þann dag. Þetta var liður í áætlun minni að eignast góðhjartaða og fallega kærustu til að eiga gefandi og innihaldsríkt samband með. Ég talaði aðeins við hinar gull fallegu stelpurnar þar. Þær virtust mjög glaðar að ég skyldi sýna starfsystur þeirra áhuga og þær voru einkar vinalegar. Þær sögðu mér að koma á morgun sem ég og gerði í dag. Daginn eftir þá náði ég athygli hennar. Hún hvíslaði einhverju til mín og skilaði mér ljóðinu sem ég orti handa henni áður. Svo faldi hún sig baka til. Ég heyrði ekki hvað hún sagði svo ég bað starfssystur og kynsystur hennar um að segja mér hvað hún sagði. Hún spurði hana og sagði að hún hefði skrifa eitthvað á blaðið. Þær virtust vonsviknar. Þar sagði hún að henni þætti fyrir þessu og ég ætti ekki að eyða tíma í hana því hún ætti kærasta og hefði þar afleiðandi ekki áhuga. Sem er vitaskuld gott og gillt. Ég fylltist eirðarleysi og jafnvel þegar ég var kominn heim gat ég hvorki setið kyrr né einbeitt mér.
Binni, viltu ei lýsa drauma víf þinni?
Sinni ég öllum svörum af baugalínu minni!
Er hún, hávaxin? Nei, hún er lágvaxin!
Er hún, holdsöm? Nei, hún er hófsöm!
Er hún, mikillát? Nei, hún er huglát!
Er hún, bláeygð? Nei, hún er skáeygð!
Sinni ég öllum svörum af baugalínu minni!
Er hún, hávaxin? Nei, hún er lágvaxin!
Er hún, holdsöm? Nei, hún er hófsöm!
Er hún, mikillát? Nei, hún er huglát!
Er hún, bláeygð? Nei, hún er skáeygð!
C'est la vie... ...nei reyndar lifir sumt fólk innihaldsríku lífi.


0 Comments:
Post a Comment
<< Home