Monday, November 13, 2006

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

"Við vitum öll hvert er markmið auglýsinga. Þó að þær hafi ákveðið upplýsingagildi og það sé að koma upplýsingum á framfæri við almenning og neytendur, þá er markmið þeirra auðvitað fyrst og síðast það að auka neyslu, að auka eftirspurn eftir einhverri vöru. Og í þessu tilviki er verið að stíla upp á það að heimila auglýsingar til að auka eftirspurn eftir lausasölulyfjum. Þetta er ekki bara spurningin um að koma lausasölulyfjum á framfæri heldur er verið að auglýsa til að auka neysluna." - Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

"Við vitum að Hagkaup og Bónus og fleiri stórmarkaðir hafa aukið samkeppnina á markaðnum og leitt til lægra vöruverðs hvort sem það er tímabundið eða varanlegt. En reynsla okkar í smásöluversluninni er líka sú að aukin verðmunur hefur orðið milli höfuðborgar og landsbyggðar í smásölu. Ég held að þetta muni gerast í lyfjunum vegna þess að ákveðið hámarksverð er sett á lyfin núna. Ekki lausasölulyf því þar er þetta algerlega frjálst heldur er sett hámarksverð á lyfseðilsskyld lyf. Ég hygg að það hámarksverð muni gilda á landsbyggðinni. Að litlu apótekin sem hafa ekki þessa stóru markaði muni vera með lyfin á hámarksverði en síðan muni stórmarkaðirnir --- við vitum að stórmarkaðirnir, svo sem Bónus og Hagkaup, ætla sér að koma upp lyfjahornum --- vegna mikillar veltu og vegna magninnkaupa og ýmissa slíkra hluta geta boðið lægra verð á lyfseðilsskyldum lyfjum. Þá erum við komin með tvö lyfjakerfi í landinu, þ.e. við erum ekki með sama verð á lyfjum fyrir fólk sem býr úti á landsbyggðinni og fólk sem býr í Reykjavík nema fólk taki upp á því að panta öll lyf frá Reykjavík frá þessum stórmarkaðsapótekum. Þá fer nú að detta botninn úr lyfsölunni úti á landi. Þetta held ég að muni nánast óhjákvæmilega gerast. Það er alls ekki hægt að þola vegna þess að lyfsala er partur af heilbrigðiskerfinu og við eigum öll að sitja við sama borð þegar kemur að heilbrigðiskerfinu og öll að borga sama gjald fyrir þá þjónustu sem þar er veitt, hvort sem við búum í Reykjavík eða úti á landi. Lægra vöruverð sem leiðir gjarnan af samkeppni byggir ekki síst á aukinni neyslu, þ.e. það er hægt að ná niður vöruverðinu með aukinni samkeppni vegna þess að neyslan eykst. Þannig náum við lægra vöruverði. Þetta mun ekki síst gilda varðandi lyf sem afgreidd eru án lyfseðils, þ.e. lausasölulyf." - Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

"Ég er ekki á leið í þingframboð að ári' og kosningadaginn sagði hún: 'Já, ég fullyrði algerlega að ég er ekki að fara í þingframboð að ári. Það er alveg ljóst" - Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

"Lífskjör fólks eru hins vegar mjög misjöfn hér á landi, lífsgæðunum er misskipt. Því verður ekki breytt með því að auka það sem við höfum úr að spila, heldur með því að stokka spilin og gefa upp á nýtt. Auðlegð okkar og fámenni ætti að gera okkur kleift að skapa hér fyrirmyndarþjóðfélag þar sem allir leggjast á eitt um að hlúa að einstaklingunum, þar sem hæfileikar hvers og eins fá notið sín og enginn er dæmdur úr leik. Það eina sem kemur í veg fyrir að við búum í slíku samfélagi er sérgæska og viljaleysi þeirra sem mest hafa. Þau rök heyrast gjarnan að margir sem hafa mikið umleikis hafi unnið hörðum höndum og lagt mikið á sig til að komast í álnir. Þetta er vissulega rétt. En það hafa fjölmargir aðrir gert líka en borið ólíkt minna úr býtum. Þá er okkur sagt að við því sé ekkert að gera. Misskipting gæða og tekna sé lögmál. Þannig hafi þetta alltaf verið og þessu verði ekki breytt. Nú síðast heyrðust orð í þessa veru sögð af formanni Vinnuveitendasambandsins. Það er vissulega á brattann að sækja þegar jöfnuður og jafnrétti er annars vegar en ef við játumst undir lögmál ójafnaðar og misréttis jafngildir það siðgæðisuppgjöf, þá beygjum við okkur undir vald nauðhyggjunnar sem segir að engu verði breytt, þeirrar nauðhyggju sem slævir réttlætiskennd og frumkvæði einstaklinganna." - Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

"Við eigum að herja á ríkisvaldið á öllum vígstöðvum og gefa því engin grið. Hins vegar megum við aldrei missa sjónar á lokatakmarkinu í hafsjó skriffinnsku og lagabókstafa. Lokatakmarkið er sósíalisminn, þ.e.a.s. samfélag jafnréttis og frelsis, þar sem konur jafnt sem karlar eru lausar undan arðráni og kúgun í hvaða mynd sem er. Fyrr tölum við ekki um sósíalisma." - Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

"Ég held að samkeppni sé dýr og almennt til leiðinda" - Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

0 Comments:

Post a Comment

<< Home